Bæjarmálafundur Lista Grindvíkinga verður haldinn á efri hæð Salthússins í kvöld klukkan 20:00. Til umræðu verða málefni bæjarstjórnarfundarins sem haldinn er á morgun, þriðjudaginn 28. nóvember kl.17:00. Bæjarstjórn hefur undanfarnar vikur unnið að fjárhagsáætlun sem verður nú tekin til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Í boði verður súpa og brauð, heitt verður á könnunni og allir velkomnir!
Listi Grindvíkinga.