Rímnaflæði 2017, rappkeppni félagsmiðstöðva á Íslandi, fór fram í átjánda sinn í Fellaskóla síðastliðið föstudagskvöld. Fulltrúi Þrumunnar að þessu sinni var Viktor Örn Hjálmarsson, en hann gerði sér lítið fyrir og endaði í öðru sæti keppninnar með lagið Vinstri og hægri. Upptöku af flutningi Viktors má sjá á Rúv.is og Facebook-síðu Þrumunnar.
Þetta eru ekki fyrstu spor Viktors í rappheiminum en hann tók sig til og rúllaði upp rappkaflanum í laginu "Besta hverfið" sem Appelsínugula hverfið gaf út fyrir Sjóarann síkáta í ár: