Það fjölgar ört í hópi grindvískra rithöfunda þessi misserin. Nýjasta viðbótin í hópinn er Sigríður Etna Marinósdóttir en hún er að gefa út barnabókina Etna og Enok fara í sveitina. Bókin er komin út og hægt að nálgast hana í öllum helstu bókabúðum en einnig verður hægt að kaupa hana áritaða beint af höfundi í dag, í útgáfuhófi sem haldið verður á Bókasafni Grindavíkur kl. 17:00.
En hver er Sigríður Etna?
„Ég er 26 ára Tálknfirðingur og hef búið í rúm fjögur ár í Grindavík. Ég vinn í félagsmiðstöðinni Þrumunni. Er gift Grindvíkingi, Ingólfi, og á eina stelpu, Ingibjörgu Etnu. Líður alveg ótrúlega vel í Grindavík og finnst gott að búa hér en Tálknafjörður á alveg sérstakan stað í hjarta mér.“
Segðu okkur aðeins frá því hvernig það kom til að þú skrifaðir barnabók?
„Það var ekki fyrr en ég fór að fara með stelpuna mína í sveitina til foreldra minna, ömmu hennar og afa, að ég áttaði mig á því hve heppin hún væri. Það er alls ekki sjálfsagt að börn fái að upplifa hina hefðbundnu, íslensku sveit. Ég hugsaði með mér hvað ég gæti gert til að leyfa öðrum börnum að njóta þess ævintýris og þá spratt upp sú hugmynd að gefa út barnabók.
Ég kláraði að skrifa handritið að bókinni og fékk Margréti Pálsdóttur til að fara yfir textann. Næst hafði ég samband við frænku mína, Freydísi Kristjánsdóttur og bað hana um að myndskreyta bókina fyrir mig. Freydís er fagmaður fram í fingurgóma og eini listamaðurinn sem mig langaði að vinna þetta verkefni með. Ég fann svo útgefanda sem hafði trú á verkinu og er ótrúlega þakklát útgáfunni Óðinsauga fyrir traustið. Núna um það bil 20 mánuðum seinna er bókin loksins orðin að veruleika.
Etna og Enok fara í sveitina hefur persónulega þýðingu fyrir mig. Önnur aðalsöguhetjan ber sama nafn og ég og dóttir mín. Dýrin í bókinni heita það sama og í sveit foreldra minna og sagan gerist í heimabæ mínum, Tálknafirði, sem mér þykir gríðarlega vænt um. Þeir sem eru að vestan ættu að þekkja umhverfið um leið og þeir byrja að lesa bókina.“
Hægt er að nálgast bókina í flestum bókabúðum eða panta á Like-síðunni Etna og Enok fara í sveitina.
Sigríður Etna ætlar að halda útgáfuboð á Bókasafni Grindavíkur næstkomandi þriðjudag, 21. nóvember frá kl. 17.00-19.00
*Hægt verður að kaupina bókina og fá hana áritaða ef fólk vill.
*Upplestur úr bókinni
*Skyssur úr bókinni, frá Freydísi Kristjánsdóttir, til sýnis.
*Léttar veitingar
Allir hjartanlega velkomnir!