Í vor fór fram könnun á öryggi barna í bílum. Könnunin var á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu og framkvæmdu félagskonur í Þórkötlu könnunina við leikskólana Krók og Laut. Niðurstöðurnar liggja núna fyrir og eru foreldrar leikskólabarna í Grindavík almennt að standa sig vel hvað öryggi barna þeirra í bílnum varðar og skila 91,2% árangri.
Könnunin var gerð við 56 leikskóla í 29 þéttbýliskjörnum víða um land og búnaður hjá 2.060 börnum kannaður. Sambærilegar kannanir hafa verið gerðar undanfarin 32 ár. Árið 1985 voru um 80% barna alveg laus í bílum en í dag er hlutfall þeirra komið niður í 2%. Í síðustu könnun eru að baki þessum 2% alls 47 ökumenn sem hafa börnin sín beltislaus, en auk þeirra voru 108 ökumenn sem höfðu börnin sín aðeins í bílbelti sem er ekki fullnægjandi öryggisbúnaður barna á þessum aldri.
Grindavík í 18. sæti
Þrír staðir, Ísafjörður, Selfoss og Reyðarfjörður, standa sig langbest og eru til fyrirmyndar með 100% einkunn, en á þeim stöðum voru öll börn í réttum öryggisbúnaði. Grindavík er í 18. sæti með 91,2 einkunn.
Stjórn Þórkötlu þakkar þeim félagskonum sem stóðu vaktina, foreldrum og börnum fyrir að taka þátt og um leið og við hrósum þeim sem standa vel að öryggi barna í bíl, þá minnum við aðra á að það má alltaf gera betur. Stefnum saman að því að skila 100% árangri hjá Grindavík í næstu könnun árið 2018.
Nánar má lesa um niðurstöður könnunarinnar hér
Hér var allt eins og það á að vera. Bæði móðir og barn með viðeigandi öryggisbúnað.
Hér var öryggisbúnaður fullnægjandi.