Í dag, föstudaginn 17. nóvember, munu félagar í Lionsklúbbi Grindavíkur bjóða uppá fría blóðasykursmælingu í Nettó frá kl. 13:00-16:00. Mælingin er hluti af landsátaki Lionshreyfingarinnar og vitundarvakningu um sykursýki.
Nóvember ár hvert er mánuður sykursýkisvarna hjá Lions. Þá bjóða Lionsklúbbar víðs vegar um land upp á fría blóðsykurmælingu. Markmiðið er að vekja almenning til umhugsunar um hættuna sem getur stafað af því að ganga
með dulda sykursýki. Hér má lesar nánar um átakið.