Lestrarátakinu á miðstiginu er nú lokið og heppnaðist það afar vel. Nemendur voru virkilega duglegir í lestrinum og kepptust við að klára sem flestar bækur á meðan á átakinu stóð.
Fyrir hverjar 20 mínútur sem lesið var fékk hver nemandi einn bókakjöl sem síðan var settur í bókahillur á gangi miðstigsins. Ýmis var hver bekkur með sína eigin hillu eða árgangurinn saman og nú má sjá hundruði bókakápa prýða veggina á ganginum hjá miðstiginu.
Það er von okkar að nemendur haldi áfram að vera jafn dugleg að lesa heima og kynna sér bækur eftir sem flesta höfunda.