Tónlistarskólinn fékk 11 káta krakka úr stjörnuhóp frá leikskólanum Laut í heimsókn. Krakkarnir fengu að kynnast trommum, píanói og þverflautu auk þess sem þau litu inn í söngtíma. Að því loknu fengu allir að prófa hljóðfærin. Flottur hópur og framtíðar tónlistarfólk sem gaman er að fá í heimsókn. Sjá fleiri myndir á Facebook-síðu tónlistarskólans.