Hefur þú gaman af því að þjóna til borðs? Við leitum að skemmtilegu fólki sem hefur áhuga á að þjóna í hlutastarfi á kvöldin. Tilvalið að taka nokkrar vaktir í mánuði með skóla. Við leitum að fólki sem er 18 ára eða eldra og helst með reynslu af þjónustustörfum. Unnið er frá 17:30 og til loka vaktar sem er jafnan um 22:30.
Nauðsynlegt er að viðkomandi tali góða íslensku og ensku. Önnur tungumál er kostur.
Nánari upplýsingar um okkur er að finna á heimasíðu okkar www.nli.is
Endilega sendu okkur ferilskrá á fridrik@nli.is ef þú hefur áhuga á að koma í liðið okkar.
Northern Light Inn / Max's Restaurant