Inspired by Iceland hleypti á dögunum nýrri kynningarherferð um Ísland af stokkunum sem kallast "Iceland A to Ö". Þar gefst erlendum ferðamönnum tækifæri til að kynna sér Ísland í máli og myndum á skemmtilegan hátt, en búin hafa verið til kynningarmyndbönd og kynningar „stafróf“ fyrir hvern og einn landshluta, þar á meðal Reykjanesið.
Grindavík og nágrenni kemur víða við í Reykjanes A til Ö, en kynningarmyndbandið má sjá hér að neðan, en eins og sjá má eru opnunarskotin úr Grindavíkurhöfn:
A-Ö um Reykjanes í máli og myndum má svo sjá hér á vefsíðu Inspired by Iceland.