Vilhjálmur Árnason, alþingismaður Grindvíkinga, mun koma í kosningamiðstöðina að Víkurbraut 25 (gamla pósthúsinu) miðvikudaginn 11. október klukkan 20:00 og ræða málefni Grindavíkurvegar. Hann mun fara yfir ferlið fram að framkvæmdum, hvar erum við stödd í ferlinu, hvað hefur verið aðhafst að undanförnu og hvernig náum við settu marki.
Spurningar og spjall um stöðu mála.
Allir velkomnir
Sjálfstæðisflokkurinn í Grindavík.