Eftirfylgniaðferð, kennsluaðferðin sem kennarar í Tónlistarskólanum í Grindavík nota, verður kynnt foreldrum í sal tónlistarskólans þann 4. september. kl. 18:00.
Eftirfylgniaðferð er aðferð sem miðar að því að styðja nemendur við æfingar heima, jafnt á hljóðfæri sem og fræðigreinum. Aðferðin er notuð með hefðbundinni einkakennslu á hljóðfæri ásamt tónfræðakennslu.
Mikilvægt er að foreldrar mæti á kynninguna þar sem farið verður sérstaklega yfir svokallaðan ,,foreldra aðgang" á Showbie sem verður aðal samskiptaform kennara og foreldra í vetur.