Námskeið hefst í vatnsleikfimi í Sundlaug Grindavíkur 21. ágúst og stendur til 20. september. Þjálfun í vatni er frábær leið til bæta likamlegt og andlegt ástand,heilbrigð hreyfing í góðum félagskap. Hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru að takast á við ýmsa kvilla í stoðkerfi. Hver og einn kemur á sínum forsendum, það eru allir velkomnir, bæði karlar og konur og það er prufutími í boði. - Nóg pláss í lauginni - líka fyrir þig.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl 16:00-16:50
*67 ára og eldri : Án endurgjalds/frítt.
*Yngri en 67 ára: Aðgangseyrir í sundlaug(kort/pen) og 6000.- kr námskeiðsgjald til þjálfara.
Alltaf einhverjar nýjar æfingar og tónlist, í bland við það gamla góða.
Komdu með, skráning og frekari upplýsingar veittar í síma 863 52 54 og ellis@simnet.is
Leiðbeinandi er: Arna Þ. Björnsdóttir, ÍAK þjálfari og jógakennari.