Fræðslufundur verður haldinn 17. ágúst n.k. kl. 17:00 í starfsstöð skólans við Suðurhóp (Hópsskóli) fyrir foreldra barna sem fædd eru 2011, Starfsfólk Grunnskóla Grindavíkur og starfsfólk Skólaskrifstofu Grindavíkurbæjar bjóða þér/ykkur á fræðslufund þar sem farið er yfir ýmsa þætti varðandi væntanlega grunnskólagöngu barns þíns. Foreldrar hitta kennara 1. bekkinga og fá að skoða aðstæður auk þess sem skólastarfið verður kynnt.
Á fræðslufundinum verður einnig farið í ýmsa þætti er snúa að upphafi grunnskólagöngu, hlutverk skólans og hlutverk foreldra. Þetta fyrsta skólaár er mikil áhersla lögð á lestur og lestrarþjálfun. Á fundinum verður kynning á nýjum kennsluháttum í lestri, Byrjendalæsi, sem kennarar yngstu nemendanna ætla að taka upp næsta haust. Boðið verður upp á léttar veitingar. Reikna má með að fundurinn taki 2 klst.