Sirkussmiđja Húlladúllunnar 14.-18. ágúst - skráning hafin

  • Fréttir
  • 1. ágúst 2017

Húlladúllan slær upp sirkussmiðju í Grindavík fyrir börn og unglinga á aldrinum 8 - 16 ára. Þátttakendur kynnast töfrum sirkuslistanna á skemmtilegu námskeiði. Við munum húlla, djöggla slæðum, boltum og hringjum, leika okkur að þyrilstöfum og sveiflusekkjum, læra fimleikakúnstir, láta eins og alvöru trúðar, vagga á veltibrettum, halda jafnvægi á töfrafjöðrum og skemmta okkur virkilega vel saman. Í lok námskeiðs bjóðum við fjölskyldu og vinum í heimsókn að sjá og prófa sirkuskúnstir.

Kennt verður í menningarhúsinu Kvikunni - Saltfiskssetrinu dagana 14. - 18. ágúst klukkan 10:00 - 14:00. Verð 15.000, 10% systkinaafsláttur, 20 klst. alls. Smellið hér til að skrá þáttakendur

Húlladúllan veitir nánari upplýsingar í tölvupósti: hulladullan@gmail.com, á Facebook og í síma 612 2727

Húlladúllan, eða Unnur María Máney, er sjálfstætt starfandi sirkuslistakona Hún hefur starfað við sirkuslistir og kennslu í Mexíkó, á Íslandi og Bretlandi. Hún hefur mikla reynslu af skapandi barnastarfi. Hún sá m.a. um skipulag og kennslu við Æskusirkus Sirkus Íslands árin 2013 - 2016 og hefur einnig kennt fyrir Kramhúsið, Listdansskóla Hafnarfjarðar, Heilsuskóla Tönju og breska sirkusfyrirtækið Let's Circus.

Áhersla er lögð á sköpunargleði, samvinnu og það að þáttakendur uppgötvi eigin styrkleika.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir