Síðustu daga hefur dregið töluvert úr fjölda nýrra frétta á Grindavik.is, enda flestar stofnanir bæjarins komnar í sumarfrí. Vefsíða bæjarins fer þó ekki í eiginlegt sumarfrí en næstu vikur verður þó sumartími á síðunni og fremur rólegt um að litast. Við viljum biðja þá sem þurfa að koma efni á framfæri að senda það inn með góðum fyrirvara, á netfangið heimasidan@grindavik.is
Gleðilegt sumar!*
*Þó það sé mígandi rigning og hífandi rok.