Frá því að tjaldsvæði Grindavíkur opnaði á ný eftir gagngerar endurbætur sumarið 2009 hefur gestum þess fjölgað jafnt og þétt á hverju sumri. Ekkert lát virðist vera á þessari fjölgun og núna í júní var enn eitt metið slegið í aðsókn þegar gestafjöldi fór í fyrsta sinn yfir 3.000 í júnímánuði. Árið 2016 (sem líka var metár) voru gestir 2.534 en 2017 eru þeir 3.322. Það er aukning upp á 31,1% milli ára.
Gistinóttum fjölgar einnig umtalsvert í júní. Árið 2016 voru gistinætur í júní 3037, en árið 2017 eru gistinætur 3920, sem er aukning upp á 29,07%.
Grindavík er augljóslega komin á kortið sem vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Íslandi og fögnum við því að ferðaþjónustan sé að festa sig í sessi sem blómleg atvinnugrein hér í bæ. Þessi mikli uppgangur er afrakstur þrotlausarar vinnu ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Þá hefur mikið og markvisst markaðsstarf verið unnið í samvinnu Grindavíkurbæjar, Grindavík Experience og Markaðsstofu Suðurnesja. Á sama tíma og við fögnum góðri uppskeru höldum við áfram veginn og vinnum áfram að því að gera Grindavík að frábærum valkosti fyrir ferðamenn, bæði innlenda og erlenda.