Útivist í Reykjanes UNESCO Geopark er samstarfsverkefni Reykjanes Geopark, Bláa Lónsins og HS Orku hf. Markmið verkefnisins er að fólk kynnist einstöku umhverfi í gegnum útivist, fróðleik og skemmtun. Næsti viðburður er ganga um Eldvörp á morgun, fimmtudaginn 13. júlí
Dagskrá sumarsins 2017
24. júní - Jónsmessuganga Bláa Lónsins og Grindavíkur
6. júlí - Boðið verður upp á hjólaferð í samstarfi við 3N þann.
13. júlí - Gengið verður um Eldvörp þann undir leiðsögn Guðmundar Ómars, jarðfræðings hjá HS Orku hf.
20. júlí - Gengið verður umhverfi Garðs og Sandgerðis undir leiðsögn Sunnu Bjarkar Ragnarsdóttur, líffræðings hjá Náttúrufræðistofunni í Sandgerði.
10. ágúst - Reynir Sveinsson mun leiða göngu frá Sandgerði að Garðskagavita.
17. ágúst - Göngufólki býðst að ganga um söguslóðir tónlistarsögunnar í Höfnum með söng og undirspili. En systkinin Ellý og Vilhjálmur Vilhjálmsbörn ólust upp í Höfnum.
24. ágúst - Gengið verður á Háleyjarbungu þann undir leiðsögn Eggerts Sólbergs Jónssonar, verkefnastjóra Reykjanes Geopark.