Framkvæmdir við endurnýjun götumyndar við Hraunbraut, á milli Staðarhrauns og Heiðarhrauns, hefjast nú á næstu dögum. Búast má við einhverjum töfum á umferð, þá sérstaklega fyrir gangandi vegfarendur enda verða gangstéttir endurnýjaðar sem og götulýsing. Við biðjumst velvirðingar mögulegum óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og biðjum íbúa og vegfarendur um að sýna þolinmæði og aðgát meðan á framkvæmdunum stendur.
Nánar upplýsingar veitir Ármann Halldórsson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.