Leikhópurinn Lotta sýnir Ljóta andarungann á morgun

  • Menningarfréttir
  • 10. júlí 2017

Leikhópurinn Lotta sýnir leikritið um Ljóta andarungann í Grindavík á morgun. Sýningin verður á túninu við kirkjuna og hefst kl. 18:00. Miðaverð er 2.300 kr.

Skilaboð frá leikhópnum Lottu á Facebook:

Kæru Grindvíkingar! Við sýnum Ljóta andarungann þriðjudaginn 11. júlí klukkan 18 á túninu við Grindavíkurkirkju. Miðaverð er 2.300 kr, munið að klæða ykkur eftir veðri, grípa með teppi og síðan er tilvalið að kippa með myndavélina fyrir myndatökur með persónum eftir sýninguna.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Um leikritið af leiklist.is:

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Ljóta andarungann, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum miðvikudaginn 24. maí klukkan 18.00. Þetta er ellefta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Litaland, Litlu gulu hænuna, Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Í framhaldinu mun hópurinn ferðast með sýninguna og heimsækja yfir 50 staði víðsvegar um landið.

Höfundur Ljóta andarungans er Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er sjöunda leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006. Ný tónlist hefur einnig verið samin fyrir verkið. Textarnir eru eftir Önnu Bergljótu en lögin eiga þær Helga Ragnarsdóttir og Rósa Ásgeirsdóttir.

Eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna er hér um að ræða útgáfu Leikhópsins Lottu á klassísku verki H.C. Andersen um svansungann sem fæddist inn í andafjölskyldu. Að þessu sinni er hann þó ekki einn á ferð heldur er búið að blanda saman fimm þekktum ævintýrum í þetta eina verk. Þau eru auk Ljóta andarungans, Öskubuska, Kiðlingarnir sjö, Hérinn og skjaldbakan og Prinsessan á bauninni. Ljóti andarunginn kynnist öllum þessum persónum og fleirum til þegar hann ferðast um Ævintýraskóginn í leit sinni að ást og virðingu.

Sýningin er bæði fjörug og skemmtileg, hana prýða níu glæný íslensk lög og húmorinn og gleðin eru alls ráðandi. Undirtónninn er þó alvarlegur en með verkinu vill Leikhópurinn Lotta leggja sitt lóð á vogarskálarnar í baráttunni við hið ægilega samfélagsmein, einelti.

Miðaverð á sýninguna er 2.300 krónur og ekki þarf að panta miða fyrirfram heldur er alveg nóg að mæta bara á staðinn. Gott er að klæða sig eftir veðri þar sem sýnt er utandyra. Þá mælir Lotta með því að foreldrar taki myndavélina með þar sem áhorfendur fá að hitta persónurnar úr leikritinu eftir sýningu. Öllum þykir jú gaman að eiga mynd af sér með uppáhalds vini sínum úr Ævintýraskóginum.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!