Vefsíðan Visit Grindavík fékk á dögunum létta andlitslyftingu en við hönnun á síðunni var sérstaklega tekið mið af þörfum þeirra sem nota síðuna í símum og öðrum snjalltækjum. Síðan er einföld og þægileg í notkun og útlit hennar stílhreint.
Visit Grindavík er mikið notuð af þeim fjölmörgu gestum sem sækja Grindavík heim, bæði erlendum og innlendum. Hún er beintengd við gagnagrunn Markaðsstofu Reykjanes og hvetjum við ferðaþjónustuaðila í Grindavík til að skrá sig þar til þess að auka sýnileika sinn.
Ferðaþjónustuaðilar sem vilja koma á framfæri breytingum á sinni skráningu eða eru ekki skráðir hjá Markaðsstofunni geta sent póst á siggeir@grindavik.is til að koma sýna fyrirtæki á framfæri. Allar ábendingar um það sem betur mætti fara á síðunni og aðrar almennar ábendingar má senda á sama póstfang.
Hönnun og forritun síðunnar var í höndum Formanna.