Sumarreiđnámskeiđ hefjast á mánudaginn

  • Fréttir
  • 23. júní 2017

Skráning er hafin á reiðnámskeið Brimfaxa sem hefjast næstkomandi mánudag, þann 26. júní. Námskeiðin verða með sama sniði og undanfarin ár og líkt og í fyrra haldin af hestamannafélaginu Brimfaxa í samstarfi við Arctic horses.
Námskeiðin eru 5 daga í senn frá kl 12-14:30, krakkarnir mæta við reiðhöllina með smá nesti í góðum bakpoka nema síðasta daginn þá er grill í boði.

Námskeiðið kostar 17.000 kr og greiðist með millifærslu á Brimfaxa fyrir námskeið.
Skráning er hjá Jóhönnu í síma 848-0143.

Námskeið í boði:
26.-30. júní / Vanir
3.-7. júlí / Óvanir
10.-14. júlí / Vanir
17.-21. júlí / Óvanir
24.-28. júlí / Vanir
14.-18. ágúst / Óvanir
21.-25. ágúst / Vanir

ATH - Ef að ekki næst næg þáttaka þá verður námskeið fellt niður.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir