Appelsínugulir unnu körfuboltamót Sjóarans síkáta í ár eftir úrslitaleik við Græna. Leikurinn endaði 15-9 eftir að grænir höfðu verið yfir í hálfleik, 8-4. Grænir hittu mjög vel framan af leik og spiluðu harða götukörfuboltavörn sem kom appelsínugulum í opna skjöldu. Varnaleikur grænna minnti helst á "Bad boys" Detroit Pistons liðið 88-91. Appelsínugulir náðu að fara yfir sín mál í hálfleik og sigldu svo fram úr í kjölfarið. Segja má að breiddin hjá appelsínugulum hafi verið lykillinn að sigrinum í ár.
Silfurliðið
Ásgeir Ásgeirsson, Scania King á Scania Cup 1996, var eitt af vopnunum í vopnabúri appelsínugulra.
Eggert Daði Pálsson, sem var hársbreidd frá því að verða Scania King á Scania Cup 1998, var einnig í liði appelsínugulra.