Appelsínugula hverfið varpaði í gær sprengju í keppninni um besta lag hverfanna á Sjóaranum síkáta í ár þegar þau gáfu út tónlistarmyndband! Það er stórleikstjórinn Hanna Sigurðardóttir sem vann myndbandið í samvinnu við Teresu Bagnsa (HÖN-TER myndirTM) og fjölmarga íbúa hverfisins sem öll lögðust á eitt til að gera þetta frábæra myndband sem má sjá hér að neðan: