Hinn sívinsæli fjölskylduleikur, Hver býr hér? er á sínum stað á Sjóaranum síkáta líkt og undanfarin ár. Þetta er léttur og skemmtilegur fjölskylduleikur þar sem bæjarbúar eiga að þekkja myndir af átta útidyrahurðum í bænum (2 úr hverju litahverfi), fylla út getraunablaðið og skila í Kvikuna í síðasta lagi mánudaginn 12. júní kl. 17:00. Glæsileg verðlaun í boði.
Getraunablaðinu var dreift í öll hús í gær en er einnig hægt að nálgast hér að neðan og má prenta út og skila þannig inn. Einnig verða blöð í Kvikunni með birgðir endast.