Dagskrá Sjóarans síkáta er þéttskipuð í dag og nóg um að vera um allan bæ. Viðburðir dagsins eru fjölbreyttir og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi í dag. Við vekjum sérstaka athygli á að sundlaugin okkar opnaði á ný í morgun og minnum á körfuboltamót hverfanna við Hópsskóla kl. 17:15 í dag.
Dagskrá dagsins í heild:
06:00-21:00 Opnunartími Sundlaugar Grindavíkur
Sundlaugin opnar á ný eftir viðgerð
10:00-17:00 Kvikan SAMFÉLAGIÐ OKKAR, ný sýning á efri hæð Kvikunnar þar sem gamlar ljósmyndir segja frá atvinnuháttum og mannlífinu í Grindavík.
10:00-22:00 ÚTVARP ÞRUMAN Félagsmiðstöðin Þruman stendur fyrir útvarpsútsendingum dagana fyrir Sjóarann Síkáta, 5.-9. júní frá kl. 10:00-22:00. Hver þáttur er 1 klukkustund. Allir sem eru 16 ára og eldri geta sótt um að vera með útvarpsþátt. Ef þú hefur áhuga á að vera með útvarpsþátt þá skaltu senda hugmynd/handrit að þætti á johannao@grindavik.is eða setna@grindavik.is. Auglýsendur sem vilja nýta sér tækifærið senda óskir á sömu netföng. - Hlusta á netinu
Eftir hádegi í Verslunarmiðstöð - kökubasar hjá stelpunum í 7. og 8. flokki kvenna í körfu. Fjáröflun fyrir æfingaferð
17:15 Körfuboltamót hverfanna á körfuboltavellinum við Hópsskóla. 5 í liði, alltaf 2 konur eða 2 karlar inn á vellinum í einu. Umsjón: Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður meistaraflokks karfa og yfirþjálfari yngri flokka.
17:00 Kvikan Sýningaropnun KYNJAVERUR. Guðmundur Garðarsson skapar áhugaverðar kynjaverur úr rekavið og þessar verur heimsækja Grindvíkinga og hafa komið sér vel fyrir á efri hæð Kvikunnar.
18:00 Hjá höllu. Kokteilakvöld hjá höllu.
20:00 Kvikan kynning Eyþórs Eðvarðssonar á verkefninu Strandminjar í hættu sem unnið er í samvinnu Grindavíkurbæjar, Minja- og Sögufélagsins og Eyþórs og félaga hans.
21:00 Pétur Jóhann Óheflaður í Gjánni. Pétur flytur glænýtt efni í bland við það besta frá Ziggfössssss síðustu ár. Húsið opnar kl. 20:30. Forsala á skrifstofu UMFG í Gjánni milli kl. 14:00 og 17:00 - viðburðurinn á Facebook
22:00 Föstudagslögin á Fish House - Bar & Grill. Forsala á staðnum. Miðaverð 2.500 í forsölu en 2.900 við hurð. - viðburðurinn á Facebook
22:00 Papa's Restaurant. Grindvískt trúbadorakvöld. - viðburðurinn á Facebook