Ratleikurinn í ár er auðveldur og skemmtilegur útivistarleikur, sem stendur frá upphafi Sjóarans síkáta fram að Jónsmessu. Leitað er að spjöldum á stöðum sem merktir eru á ratleikskortið eða vísað á þá. Í Grindavík eru margar söguminjar. Ratleikurinn vísar á nokkra slíka staði. Fróðleikurinn byggir á tilgátum en stuðst er við sagnir, örnefnalýsingar og munnmæli fólks í Grindavík. Gangið vel um minjar og nálæga staði. Höfundur ratleiksins er Sigrún Jónsd. Franklín.
Ratleikurinn í ár er í kringum bæjarfjallið okkar góða, Þorbjörn. Nágrenni Þorbjarnar hefur upp á fjölmargt að bjóða m.a. fallega gönguleið undir fjallinu norðan megin. Fylgt er stikaðri leið Reykjavegi. Hægt er að ganga hring með því að fara upp Gyltustíg með fjallinu eða ganga sunnan megin við fjallið. Tilvalið er að taka með sér nesti og njóta útivistar um leið og leitað er að spjöldum. Ratleikurinn byggir á fróðleik um sögu náttúru og umhverfi sem nýtist útivistarfólki til gagns og gamans.
Ratleikurinn er prentaður í dagskrá Sjóarans síkáta en einnig er hægt að prenta þátttökusíðuna út með því að smella hér að neðan: