Hin árlega Vorgleði okkar verður í og við Iðuna á Ásabrautinni fimmtudaginn 1. júní kl. 11:00 - 13:00.
Starfsfólk skólans og Foreldrafélagið taka höndum saman og standa sameiginlega að þessari fjölskylduhátíð. Margt skemmtilegt verður í boði eins og t.d. skák, gerð vinabanda - just dance, slökun, Minute to win it, glimmerlímgerð, fótboltaþrautir, spil, golfþrautir, spurningarkeppni og margt fleira. Einnig verður hin árlega hlutavelta sem 4. bekkur heldur til styrktar Rauða krossinum.
Foreldrafélagið mun gefa grillaðar pylsur og drykk með.
Athugið að þetta er skertur dagur hjá nemendum en nemendum er skylt að mæta þennan dag þar sem þetta er skóladagur og við hvetjum foreldra og aðra ættingja til að mæta og taka þátt í gleðinni.
Hlökkum til að sjá ykkur
Starfsfólk og Foreldrafélag Grunnskóla Grindavíkur.