Blái herinn kemur til Grindavíkur á morgun og hreinsar svæðið í kringum Brimketil. Sjálfboðaliðar frá UMFG munu aðstoða við hreinsunina en þeir sem vilja leggja hönd á plóg eru hvattir til að mæta á svæðið og taka til hendinni með hópnum. Tiltektin hefst kl. 10:00.
Heimsókn Bláa hersins markar upphaf Umhverfisdaga hjá Grindavíkurbæ þar sem við munum taka til og gera bæinn snyrtilegan fyrir sumarið.