Það var aldeilis skemmtilegt hjá 4.V í vikunni eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Börnin fóru með Viktoríu kennara sínum í gönguferð upp í hesthús og þar tók hestamaðurinn Jón Helgason sem er faðir einnar stúlkunnar í bekknum á móti þeim og fengu allir að fara á hestbak sem vildu.