Á vordögum í skólanum er jafnan stefnt að því að brjóta upp hefðbundið nám með útivist t.d. með því að ganga fjöll. Bæjarfjallið okkar Þorbjörn er alltaf vinsælt enda er þar heilmikil náttúra, minjar og svo er fjallið aðgengilegt að klífa. Nemendur í þriðja bekk fóru með kennurunum sínum í gær og skoðuðu fjallið vel, fóru niður í Þjófagjá, borðuðu nesti og nutu útiverunnar alveg í botn.
Í daglegu tali er Þorbjarnarfell nefnt Þorbjörn. Tvennum sögum fer af nafngiftinni. Fellið er stakt móbergsfell (243 m.y.s) og varð til að hluta á fyrra ísaldarskeiði og hinu síðasta. Það er því með eldri fjöllum, eða fellum, á Reykjanesskaganum. Af fellinu er mikið útsýn yfir mikinn hluta Reykjanessfjallgarðsins. Norðvestan við fellið er mikil jarðhitamyndun (Bláa lónið og Svartsengi) og norður og norðaustur af því er einnig allvíðáttumikið jarðhitasvæði.
Í jarðfræðilegu tilliti er Reykjanesskaginn merkilegt fyrirbæri.
Frekari upplýsingar um fjallið má lesa á:
http://www.ferlir.is/?id=17567