Matarboð voru í gær heima hjá nemendum sem taka þátt í verkefninu Lítill skóli - margir möguleikar. Fjölskyldur opnuðu heimili sín og buðu upp á góðan og alþjóðlegan mat og spjall um heima og geima. Hópurinn hefur gert margt skemmtilegt og gagnlegt og alltaf nóg við að vera. Í dag er stefnan hjá hópnum m.a. að skoða Gullfoss og Geysi og einnig fleiri staði í Grindavík.
Reynsla nemenda af gestaheimsókn sem þessari á án efa eftir að verða dýrmætt veganesti. Eins og áður hefur komið fram samanstendur hópurinn af nemendum frá Danmörku, Færeyjum, Lettlandi og svo nemendum frá Grunnskóla Grindavíkur. Þær Guðrún Inga Bragadóttir náms- og starfsráðgjafi skólans og Petrína Baldursdóttir deildarstjóri unglingastigs leiða þetta verkefni af hálfu skólans.