Miðvikudaginn 24. maí kl. 14 - 16 verður Dr. Bæk við bókasafnið. Við hvetjum alla hjóleigendur að koma með hjólhesta sína í fría ástandsskoðun hjá Dr. Bæk (Búnaður - Æfing - Kunnátta). Doktorinn kemur með farandskoðunarstöðina sína, pumpu, olíur og nokkra skiptilykla. Hann skoðar hjólin og vottar heilsu þeirra.
Alls konar spurningar leyfðar!