Á dögunum tók heilsuleikskólin Krókur á móti 14 kennurum frá 5 löndum í verkefni á vegum NORDPLUS JUNIOR, menntaáætlunar norrænu ráðherranefndarinnar. Var góður rómur gerður að heimsókninni sem þótti bæði fróðleg og skemmtileg og voru hinir erlendu gestir ekki síst heillaðir af íslenskri náttúru. Við birtum hér að neðan frétt og myndir frá Króki um heimsóknina:
Hvenær megum við fara út í hraunið?
Um síðustu helgi lauk vel heppnaðri heimsókn 14 kennara frá 5 löndum í Heilsuleikskólann Krók í Grindavík á vegum NORDPLUS JUNIOR, menntaáætlunar norrænu ráðherranefndarinnar. Áætlunin hefur það að markmiði að stuðla að samstarfi og gæðum í menntun á Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum.
Krókur var í samstarfi við skóla frá Litháen, Lettlandi, Finnlandi, Danmörku og Eistlandi og var þetta í þriðja sinn sem hópurinn hittist. Verkefnið var um 5 þætti heilsueflingar samkvæmt kenningum Sebastian Kneipp sem taldi að hreyfing, næring, jafnvægi, vatn og jurtir væru þættir sem stuðla að almennri heilsu og fyrirbyggja jafnvel sjúkdóma.
Þema heimsóknarinnar til Íslands var andleg velferð í leikskólastarfi (e. mental well-being) og hélt Hulda skólastjóri fyrirlestur um leiðir til að efla tilfinningalegt jafnvægi, jákvæða félagslega hegðun og vellíðan. Gestirnir fóru einnig í skólaheimsóknir, skoðunarferðir um Suðurlandið, Reykjanesskagann, Reykjavík og svo auðvitað í Bláa Lónið. Gaman og lærdómsríkt var að kynna íslenskt skólastarf, land og þjóð fyrir erlendu kennurunum sem voru yfir sig hrifnir en vildu helst af öllu komast í snertingu við hraunið í kringum Grindavík.
Það voru ánægðir kennarar sem yfirgáfu landið með fyrirheit um að koma aftur til Íslands