Kæru foreldrar/forráðamenn. Skráning í Vinnuskólann fyrir sumarið 2017 hefst í dag þriðjudag og stendur til föstudagsins 19. maí. Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma. Skráning er að þessu sinni hjá frístundaleiðbeinanda, Jóhanni Árna Ólafssyni - johannao@grindavik.is, í Þrumunni í Iðu. Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila til hans. Nemendur geta aðeins skráð sig hafi þeir leyfisbréf frá forráðamanni sem þarf að skila inn við skráningu.
Allar nánari upplýsingar um Vinnuskólann er að finna í Handbók Vinnuskólans (sjá neðan). Vinnurammi Vinnuskóla er með sama hætti og árið 2016.
Fyrirkomulag 2017:
· 8. bekkur: Byrja kl. 08:00. Vinnutími á viku: 16 klst.
· 9. og 10. bekkur: Byrja kl. 08:00 og fá hálftíma í hádegismat. Föstudagarnir detta út og vinnunni þjappað betur saman hina dagana. Vinnutími á viku: 26 klst.
· 17 ára: Byrja kl. 08:00 og fá hálftíma í hádegismat. Vinna mánudag til fimmtudags. Stendur til boða að vinna frá kl. 08:00-12:00 á föstudögum (frjáls mæting). Vinnutími á viku: 26 klst. (30)
Kynningarfundur - Skyldumæting
Sérstakur kynningarfundur um starfsemi Vinnuskóla Grindavíkur verður haldinn í Grunnskóla Grindavíkur sem hér segir:
Þriðjudaginn 6. júní kl. 14:00 fyrir nemendur fædda 2001, 2002 og 2003 (8.-10. bekk). Foreldrar/forráðamenn velkomnir með á fundinn.
Á fundinum verður farið yfir verkefni sumarsins, skiptingu í hópa, vinnureglur og launakjör. Jafnframt skrifa nemendur undir ráðningasamning.
Litið er svo á að ef ungmenni mætir ekki á fundinn eða tilkynnir ekki forföll muni hann ekki þiggja vinnu við Vinnuskólann.
Codland-vinnuskólinn
Vinnuskólinn og Codland hafa undanfarin fjögur ár starfrækt vinnuskóla fyrir 8. og 9. bekk. Verður hann starfræktur í sumar og blandast inní dagskrá vinnuskólans. Þátttakendur fá greitt í samræmi við launatöflu vinnuskólans og þarf að sækja sérstaklega um hann síðar í sumar, takmarkaður fjöldi kemst inn.
Í Vinnuskólanum verður boðið upp á vinnuverndarnámskeið, hópeflisnámskeið og fleira. Nánar auglýst síðar.
- Umsóknareyðublað fyrir Vinnuskólann
- Leyfisbréf fyrir Vinnuskólann