Laus störf viđ leikskólann Laut

  • Fréttir
  • 11. maí 2017

Sérkennslustjóra, deildarstjóra og leikskólakennara vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík frá 15. ágúst. Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og sambands íslenskra sveitarfélaga. Leikskólinn er fimm deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða - 6 ára. Við erum ,,Skóli á grænni grein" og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni - Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu hans.

Hæfniskröfur:

Leikskólakennaramenntun
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum
börnum æskileg.
Færni í samskiptum.
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Vakin er athygli á því að ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859.

Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið frida@grindavik.is

Endurnýja þarf eldri umsóknir.

Umsóknarfrestur er til 1.júní 2017


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál