Leikjanámskeið verður starfrækt að vanda í sumar. Skráning hefst á hádegi, fimmtudaginn 11. maí, og mun fara fram í gegnum heimasíðuna. Eingöngu boðið upp á pláss hálfan daginn og námskeiðið verður eingöngu fyrir 1.-3. bekk. Þá verður ekki námskeið í ágúst.
Í sumar verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn sem eru að ljúka námi í 1.-3. bekk í vor (árgangar 2008, 2009 og 2010) þar sem viðfangsefnin eru skemmtileg og uppbyggjandi. Mikið er lagt upp úr útiveru.
Hámarksfjöldi barna á hverju námskeiði er 30-35 fyrir hádegi og 30-35 eftir hádegi, samtals 60-70 á dag. Þegar námskeiðin eru full verður hægt að skrá barn á biðlista. Ef biðlistar verða langir verður skoðað hvort hægt sé að bregðast við því.
ATHUGIÐ!
• Bara hægt að skrá barn annað hvort fyrir hádegi eða eftir hádegi. Ekki hægt að skrá barn allan daginn
• Hægt er að skrá barn á öll námskeiðin.
Valkostir:
• Fyrir hádegi frá kl. 09:00-12:00. Hægt er að kaupa gæslu frá kl. 08:00-09:00.
• Eftir hádegi frá kl. 13:00-16:00
Námskeið 1: 12. júní - 23. júní (10 dagar). Verð: 7.650 kr.
Námskeið 2: 26. júní - 7. júlí (10 dagar): Verð: 7.650 kr.
Námskeið 3: 10. júlí - 21. júlí (10 dagar): Verð: 7.650 kr.
Námskeið 4: 24. júlí - 4. ágúst (10 dagar). Verð: 7.650 kr.
Pössun milli 08:00-09:00 Verð: 2.500 kr.
OPNAÐ VERÐUR FYRIR SKRÁNINGAR FIMMTUDAGINN 11. MAÍ KL. 12:01!