Kvikan, auðlinda- og menningarhús Grindavíkur, er sérhannað og reisulegt sýningarhús sem staðsett er í næsta nágrenni við Grindavíkurhöfn. Í húsinu eru nú þrjár sýningar; Saltfisksetur Íslands, Jarðorkan og Guðbergsstofa. Stjórn Kvikunnar leitar að áhugasömum aðila til að standa fyrir rekstri í húsinu. Tilgangurinn er sá að bæta nýtingu og rekstrarforsendur og stuðla að öflugri og fjölbreyttri starfsemi í húsinu.
Mikilvægt er að rekstraraðili hafi reynslu af rekstri og geti sýnt fram á næga fjárhagslega getu til að undirbúa og reka þá starfsemi sem hann hyggst standa fyrir.
Stjórn Kvikunnar mun leggja mat á þær hugmyndir sem kunna að berast og meta fjárhagslega getu viðkomandi. Stjórnin áskilur sér rétt til að taka upp viðræður við hvaða aðila sem er án formlegs rökstuðnings eða hafna öllum hugmyndum.
Þeir sem áhuga hafa á verkefninu eða óska frekari upplýsinga er bent á að senda póst á fannar@grindavik.is fyrir 15. maí nk.