Heilsuleikskólinn Krókur er 4 deilda leikskóli með um 100 börn. Í stefnu leikskólans er lögð áhersla á heilsueflingu, frjálsan leik, umhverfismennt og jákvæð samskipti með áherslu á umhyggjusamt námsumhverfi.
Við leggjum ríka áherslu á jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir og því leitum við að samstarfsfólki sem:
• Er tilbúið að tileinka sér starfsaðferðir leikskólans
• Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum
• Er tilbúið að taka þátt í öflugri skóla- og starfsþróun
• Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn
Fáist ekki leikskólakennari kemur til greina að ráða starfsmann með aðra uppeldismenntun eða ófaglærðan leiðbeinanda.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um
Nánari upplýsingar veita: Hulda Jóhannsdóttir skólastjóri eða Bylgja Héðinsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 426-9998.
Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://www.skolar.is/umsoknir/ (eyðublað fyrir neðan leikskólaumsóknir).