Við hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) óskum eftir því að ráða sjúkraliða til starfa í skólaheilsugæslu í Grindavík. Um er að ræða 20% stöðu frá 1. ágúst 2017
Helstu verkefni og ábyrgð:
Heilsuvernd skólabarna er framhald af ung- og smábarnavernd og er einn skóli í Grindavík. Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru fræðsla og heilsuefling, skoðanir, umönnun veikra og slasaðra barna, ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans.
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi.
Faglegur metnaður og vandvirkni.
Jákvætt og hlýtt viðmót.
Góð samskiptahæfni.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Starfsreynsla er æskileg.
Kostur að hafa unnið með börnum og unglingum.
Frekari upplýsingar um starfið
Um er að ræða framtíðarstarf. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Sótt er um starfið rafrænt á vefnum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði.
Starfshlutfall 20%
Umsóknarfrestur er til og með 22.maí 2017
Nánari upplýsingar veitir: Kolbrún Una Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Netfang: kolbrunj@hss.is Sími: 422-0750 og 857-3169.