Framundan er helgasta hátíð kristinna manna, sjálfir páskarnir, og af því tilefni verður nóg um að vera í Grindavíkurkirkju á næstunni.
13. apríl. Skírdagur
Kl. 20:00 - Hugleiðslustund og altarisganga.
Kaffi eftir stundina
14. apríl. Föstudagurinn langi
Kl.11:00 - Passíusálmarnir lesnir, brotið upp með orgelleik milli lestra.
Sóknarbörn sjá um lesturinn. Fólk getur komið og farið að vild á meðan lestrinum stendur. Boðið upp á kaffi og meðlæti.
Kl. 18-20 - Opin kirkja
Allir velkomnir að koma og eiga hljóða stund og kveikja á bænakerti
16. apríl. Páskadagur kl. 08:00 - Hátíðarguðsþjónusta.
Súkkulaði, kaffi og rúnstykki eftir messu.
Páskaegg á hverju borði og málsháttur lesinn