Árshátíðarleikrit unglingastigsins, Vinsæld og Partýland, verða sýnd í sal skólans í kvöld kl. 20:00. Um lokasýningu leikritanna er að ræða svo að við hvetjum alla til að mæta. Nemendur í 7.- 8. bekkjum sýna leikritið Partýland í stjórn Aldísar Davíðsdóttur leikkonu og nemendur í 9. - 10. bekk sýna leikritið Vinsæld eftir Pálmar Guðmundsson í leikstjórn höfundar. Miðaverð er 1000. kr fyrir fullorðna, 500. kr fyrir 6. - 12. ára og frítt er fyrir börn á leikskólaaldri. Kaffisala verður á staðnum og munu nemendur úr 10. bekk sjá um sölu á veitingum og er það liður í fjáröflun þeirra fyrir vorferðalagi.
Leikritið Partýland er unnið af nemendunum sjálfum upp úr spunaæfingum.
Partýland er land sem iðar af fjöri og gleði, þar brosa allir allan daginn alla daga, dansa og syngja. Hvern dreymir ekki um endalaust partý. Partýkonungurinn stýrir landinu og uppi eru sögusagnir um að hann hafi myrt konuna sína og að fólk sé látið hverfa sé það ekki samþykkt reglum Partýlands. Óvæntir atburðir verða til þess að persóna utan Partýlands kemur í heimsókn og hægt og rólega fara hlutirnir að snúast á versta veg. Mjög spennandi hvað gerist þar?
Leikritið Vinsæld gerist í Grindavík og fjallar um líf nemenda við skólann. Gulli nemandi í skólanum þráir ekkert meira en að vera vinsæll. Hann er tilbúinn til að gera ýmislegt til að láta þennan draum rætast. Hvaða aðferðir notar hann og tekst honum ætlunarverk sitt? Við munum komast að því á sýningunni. Einnig fáum við innsýn inn í líf unglinga í Grindavík sem oft getur verið fult af óvæntum uppákomum.