Grindavíkurbær kemur mjög vel út í þjónustukönnun Gallup, en 19 stærstu sveitarfélög landsins taka þátt í henni. Var þetta þriðja árið í röð sem Grindavíkurbær er meðal þátttakenda. Það er oft erfitt að bæta sig þegar árangurinn er mjög góður, en þó varð það þannig að í sjö tilvikum af þrettán mælist ánægja með þjónustu hærri en árið 2015. Samanburður við önnur sveitarfélög er Grindvík mjög í hag og röðum við okkur í efstu sætin í nokkrum flokkum. Grindavík deilir 1. sætinu með nokkrum öðrum sveitarfélögum þegar spurt er um ánægju með aðstöðu til íþróttaiðkunnar og er í 2. sæti þegar spurt er um þjónustu við barnafjölskyldur.
Ánægja mikil hjá barnafjölskyldum
Grindavíkingar geta verið sérstaklega stoltir af árangrinum í þáttum sem snúa að þjónustu fyrir börn í sveitarfélaginu. Við stöndum langt fyrir ofan landsmeðaltal þegar spurt er „Hversu ánægð(ur) eða ónægð(ur) ert þú með þjónustu fyrir barnafjölskyldur í sveitarfélaginu" og þá hefur grunnskólinn tekið vænt stökk upp á við, úr 3,6 í 3,8 og fer þar með upp fyrir landsmeðtalið sem er 3,7. Hækkar einkunn skólans um sjö sæti frá síðustu könnun sem er frábær árangur.
Þetta er mikil viðurkenning fyrir það góða starf sem unnið er í grunnskólanum okkar og ljóst að þar erum við á réttri leið og erum hvergi nærri hætt í að reyna að bæta okkur og þjónustu sveitarfélagsins í þeim málaflokki.
Málefni eldri borgara hástökkvarinn
Þegar spurt er um þjónustu við eldri borgara sjáum við stórt stökk á milli ára uppá við, úr 3,2 í 3,6. Málefni eldri borgara hafa verið nokkuð í brennidepli undanfarin misseri í Grindavík og hefur sennilega verið eftir því tekið að bæjaryfirvöld róa að því öllum árum að þessi málaflokkur sé bæjarfélaginu til sóma. Nú standa yfir framkvæmdir við Víðihlíð til þess að mæta húsnæðisþörf þessa hóps og þá er líka farið af stað tilraunaverkefni í Víðihlíð þar sem boðið er upp á heitan mat í hádeginu.
Stjórnendur taka mark á könnuninni
Sérstaklega er ánægjulegt að sjá umtalsverða bætingu í þeim tveimur flokkum sem verst komu út árið 2015, en það voru spurningarnar „Hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ert þú með þjónustu við eldri borgara í sveitarfélaginu?" og „Hversu vel eða illa finnst þér starfsfólk bæjarins/sveitarfélagsins hafa leyst úr erindi eða erindum þínum?" Voru þessi atriði tekin til sérstakrar skoðunar í kjölfar síðustu könnunar. Málefni eldri borgara stökkva upp um 6 sæti og mælist þar marktæk breyting á milli ára. Við stefnum þó að sjálfsögðu enn hærra og ætlum að hækka aftur að ári.
Þessi grein birtist áður í 1. tbl. Járngerðar 2017