Stađa skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur laus til umsóknar

  • Grunnskólinn
  • 29. mars 2017

Staða skólastjóra við Grunnskóla Grindavíkur er laus til umsóknar. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í góðu samstarfi við annað starfsfólk skólans.

Starfsemin skal einkennast af fjölbreytni, sveigjanleika og víðsýni, þar sem tekið er tillit til mismunandi þarfa, áhuga og getu nemenda.

Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með tæplega 500 nemendur á tveimur starfsstöðvum. Í skólanum starfa 80 starfsmenn, þar af um 40 stöðugildi kennara. Hlutfall fagmenntaðra kennara er rúm 80%. Grindavíkurbær rekur skóla- og félagsþjónustu sem sinnir stoð- og sérfræðiþjónustu fyrir Grunnskóla Grindavíkur. Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni. Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er með ágætum.

Grindavíkurbær er um 3.230 íbúa samfélag í næsta nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Í Grindavík er lögð áherslu á fjölskylduvænt umhverfi, íþróttastarf og heilsueflingu í skóla og leikskóla. Veffang skóla er http://www.grindavik.is/grunnskolinn og er m.a. bent á starfsáætlun 2016 - 2017 varðandi frekari upplýsingar um skólann.

Starfssvið:
Skólastjóri ber faglega- og rekstrarlega ábyrgð á starfi skólans, stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun faglegrar stefnu.

Menntunarkröfur:
• Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla er skilyrði
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða æskileg
Hæfniskröfur:
• Kennslureynsla í grunnskóla er skilyrði
• Reynsla af störfum á sviði stjórnunar og reksturs er æskileg
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og samstarfsvilji
• Góðir skipulagshæfileikar
• Áhugi og reynsla til að leiða þróunarstarf
• Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum

Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi skólastjóra. Þá skal fylgja umsókninni greinargerð um hugmyndir umsækjanda um starfið og hvernig hann sér starfsemi Grunnskóla Grindavíkur þróast undir sinni stjórn.

Staðan er laus frá 1. ágúst næstkomandi. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf fyrr. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands.

Nánari upplýsingar veita Nökkvi Már Jónsson, sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs í síma 420-1100 og Halldóra Kristín Magnúsdóttir, skólastjóri í síma 420-1150. Umsóknir skulu berast bæjarskrifstofu Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62, 240 Grindavík í síðasta lagi 6. apríl næstkomandi. Einnig er hægt er að senda umsóknir á netfangið nmj@grindavik.is.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir