Árshátíð miðstigs verður miðvikudaginn 29. mars kl. 13.00 og 15.30 og eru foreldrar velkomnir á sýninguna. Engin kennsla verður á miðstigi þennan dag og nemendur mæta aðeins á árshátíðina sína.
Kl. 13:00 á fyrri sýningunni sýna 5.A, 4.V og 6.S
Kl. 15:30 á seinni sýningunni sýna 5.S, 4.M og 6.U
Einnig munu nemendur úr Tónlistarskólanum vera með tónlistaratriði.
Foreldrar nemenda í 6. bekk verða með kaffisölu á sýningunum. Kaffisalan er til ágóða fyrir hina árvissu Reykjaferð 7. bekkjar. Til sölu verður kaffi, safi og kökur .
Athugið að aðeins er hægt að taka við peningum. ENGINN POSI ER Á STAÐNUM.
Gleðilega hátíð.