Gleðin skein úr andlitum nemenda á seinni árshátíðarsýningunni sl. fimmtudag. Pabbi og mamma, afi og amma voru mætt á svæðið til að fylgjast með sínu fólki. 2. M, 2. P, 3. R og 3.M komu fram í þetta sinn og stóðu allir sig með mikilli prýði. Eins og á fyrri sýningunni var sungið, dansað og leikið á blokkflautu og leikin leikrit og í lokin á báðum sýningunum sýndu 3. bekkingar stuttmynd úr skólalífinu. Lína langsokkur, sjóræningar og kúrekar villta vestursins mættu til leiks bæði í leikriti og dansi og dansinn úr Grease var á sínum stað. Kynnar sýningarinnar voru, Hekla Sóley Jóhannsdóttir í 3. R og Gunnar Helgi Magnússon Í 3.M. Kaffiveitingarnar klikkuðu ekki og fólk gaf sér góðan tíma til að spjalla og njóta þessa dags.
Þjóðhátíðarlagið Ástin á sér stað sungið á sviðinu.
Sönggleði.
Menn voru alveg í rétta gírnum með blokkflauturnar.
Í villta vestrinu gildir að vera með kúrekahattana, köflóttu skyrturnar og gallabuxurnar!
Barþjónninn hafði ekki alveg nógu mikið að gera........
Kúrekadansinn stiginn af miklu öryggi.
Sjóræningjarnir mættir á Sjónarhól.
Lína langsokkur fer alltaf sínar leiðir.
Dansinn úr kvikmyndinni Grease stendur alltaf fyrir sínu.
Sporin alveg á hreinu.
Hvílíkur myndarskapur.
Hekla Sóley Jóhannsdóttir og Gunnar Helgi Magnússon voru einbeitt í kynningunni.