Hátíðir og hefðir eru mikilvægar í samfélaginu okkar. Þá komum við saman, fögnum, setjum slaufu á verkefni sem unnin hafa verið og uppskerum. Árshátíð yngsta stigs er ávallt mikið tilhlökkunarefni og sérstaklega notalegur og skemmtilegur dagur hjá nemendum, fjölskyldum þeirra og starfsfólki skólans. Fjöldans vegna þarf að skipta bekkjum niður á tvær árshátíðir og var sú fyrri kl. 13 þar sem fram komu 1. bekkur, 2.Á, og 3. V.
Hefðin er sú að nemendur á sýningunni koma upp á svið og syngja lag sem sungið hefur verið í morgunsöng, að þessu sinni var þjóðhátíðarlagið Ástin á sér stað tekið og lék Pálmar Örn Guðmundsson undir á gítar. Þá leika nemendur á blokkflautu en forskólanámið í tónlistarskólanum er í höndum Ingu Bjarkar Runólfsdóttur, 3. bekkirnir dansa undir stjórn Hörpu Pálsdóttur danskennara, að öðru leyti eru það umsjónarkennararnir sjálfir sem æfa atriði með nemendum. Kynnar á sýningunni kl.13 voru Helgi Hróar Sigurðsson og Auður Líf Benediktsdóttir, nemendur í 3. V. Haft er að leiðarljósi að allir nemendur taki þátt og hefur það tekist mjög vel. Skólinn er fallega skreyttur og fjölskyldur barnanna sameinast um að leggja til bakkelsi á veisluborð.
Helgi Hróar Sigurðsson og Auður Líf Benediktsdóttir í 3. V, voru örugg í kynningunni.
Framtíðarsöngfólk syngur Ástin á sér stað, hér í Herjólfsdal.......
Blokkflautuleikurinn var mjög vel æfður og skemmtilegur.
Drengirnir í 1. bekk sungu Hákarlinn í hafinu sem eru vísur eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson.
Sannfærandi með rétta höfuðbúnaðinn.
Nemendur í 2. Á hafa lært um líkamann í vetur og fóru með vísur sem tengdust því.
Nemendur í 2. Á syngja af innlifun.
Flottur dans hjá 3. V.
Alveg með þetta á hreinu.
Stuð, stuð, stuð!
Stúlkurnar í 1. bekk fóru með ýmiss konar fróðleik m.a. um formin, bókstafina og góða siði.
Þær sungu líka Traustur vinur.