Í kvöld, þriðjudagskvöldið 14. mars klukkan 20:00, verður sagnakvöld haldið í Gjánni þar sem íbúar í Grindavík, innfæddir og aðfluttir, hittast og deila sögum sínum með gestum. Þeir sem taka þátt í sagnakvöldinu hafa áhugaverða sögu að segja, sumir hafa fæðst annarsstaðar og jafnvel í fjarlægum löndum og hafa frá ýmsu að segja frá upprunalöndum sínum, barnæsku á heimaslóðum, flutningi til Íslands, matarverjum, búsetu á Íslandi eða barnæskunni hér á Íslandi.
Þátttakendur koma frá Króatíu, Bosníu, Tékklandi, Lettlandi, Íslandi, Rússlandi, Spáni, Bandaríkjunum, R.Srpska, Alsír og Makedóníu. Um leið og gestir fá að heyra áhugaverðar frásagnir er þeim boðið að smakka brauðrétti og sætabrauð frá þeim fjölbreyttu löndum sem sögumenn kvöldsins eiga sterkar taugar til.
Gestum er lofað góðri kvöldstund þar sem við skiptumst á sögum, fáum að kynnst betur fjölbreyttum bakgrunni Grindvíkinga um leið og við brögðum á sætabrauði frá öllum heimsins hornum. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson heiðrar samkomuna með nærveru sinni.
Mynd: Sigurður Bogi Sævarsson