Dagskrá Menningarviku er fjölbreytt í dag og margir skemmtilegir viðburðir á dagskrá. Formleg setning Menningaviku verður kl. 17:00 í kirkjunni í dag, en þar fyrir utan eru ýmis námskeið og sýningar í gangi og í kvöld verða tveir stórir tónlistarviðburðir á dagskrá.
10:00-18:00 Verslunarmiðstöð, Heilsuleikskólinn Krókur, Leikskólinn Laut og Grunnskóli Grindavíkur sýna verk nemenda sinna
11:00-17:00 Safnahelgi á Suðurnesjum. Í tilefni Safnahelgar á Suðurnesjum er ókeypis á öll söfn, þar á meðal Kvikuna. Allir velkomnir á opnunartíma
12:00-21:00 Salthúsið, Helga Kristjánsdóttir bæjarlistamaður Grindavíkur með sýningu í Salthúsinu
10:00-14:00 Bókasafn Skapandi skrif, námskeið.
10:00-16:00 Kvennó Handverk og hönnun
14:00-16:00 Greip - opnar vinnustofur handverksfólks í Greip, Skólabraut 8
15:00 Víðihlíð, Blítt og létt hópurinn úr Vestmannaeyjum heimsækir Víðihlíð
14:00-17:00 Framsóknarhúsið, MÆÐGUR SÝNA VERK SÍN. Ljósmyndaverkið LEYST ÚR LÆÐINGI eftir Vigdísi Heiðrúnu Viggósdóttur og tvær seríur eftir dóttur hennar Arís Evu Vilhjálmsdóttur, Víkurbraut 27
17:00 Grindavíkurkirkja, Formleg setning Menningarviku 2017. Menningarverðlaun afhent, söngur og skemmtun og eftir setninguna er gestum boðið í safnaðarheimilið í veitingar
21:00 Salthúsið, Blítt og létt hópurinn úr Vestmannaeyjum með tónleika. Aðgangseyrir 2.500 kr. miðar seldir við innganginn og í forsölu
00:00 Fish House Bar & Grill 80s partý sem enginn annar en Geir Flóvent stýrir