Grindavíkurbær auglýsir eftir leiðbeinendum í 100% starf til að starfa við leikjanámskeið bæjarins sumarið 2017. Starfstímabilið er frá 5. júní til 27. júlí um það bil. (Einnig hægt að byrja fyrr og enda síðar, sami vinnutími og flokksstjórar). Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu.
Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði
- góða hæfni í mannlegum samskiptum og síðast en ekki síst reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum.
Leiðbeinendur hafa umsjón með starfsemi leikjanámskeiðanna í samráði við sviðssstjóra frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björg Einarsdóttir sviðsstjóri í síma 420 1100, netfang: bjorg@grindavik.is