Fyrsta tölublað Járngerðar kom brakandi ferskt úr prentsmiðjunni í morgun og er nú á leiðinni inn um bréfalúgur Grindvíkinga. Að vanda er fyrsta blað ársins að miklu leyti helgað Menningarviku, má þar finna dagskrá hennar frá degi til dags ásamt umfjöllunum um helstu viðburði. Blaðið má einnig lesa rafrænt hér að neðan.
Meðal annars efnis í blaðinu má nefna umfjöllun um Nordplus verkefnið „Litlir skólar - miklir möguleikar“, viðtal við þjálfara meistaraflokka Grindavíkur í knattspyrnu, umfjöllun um þjónustukönnun sveitarfélaga sem kom mjög vel út fyrir Grindavík og atvinnuauglýsingar fyrir sumarstörf hjá Grindavíkurbæ.
Að baki Járngerðar liggur mikil vinna og eru margir sem koma að henni á einn eða annan hátt. Vill ritstjóri nota tækifærið og koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lögðu hönd á plóg að þessu sinni.